Notaleg og hressandi dekurferð með sjálfseflingu
Undir leiðsögn vinkvennanna Sigríðar Huldu hjá SHJ Ráðgjöf og dr.Árelíu Eydísar
Báðar eru þær með áratuga reynslu af því að vinna með sjálfseflingu á hagnýtan og skemmtilegan hátt bæð í einkalífi og starfsumhverfi.
Fjölbreytileikinn verður við völd og þessi vinna fer fram með samveru út og inni, við sundlaugina, með jógateygjum, með léttum göngu- og hjólaferðum í skóginumsem umkringir hótelið.
Sigríður Hulda er með MA gráðu í náms- og starfsráðgjöf, MBA í stjórnun og viðskiptum, BA í uppeldis- og menntunar-fræðum og kennsluréttindi frá Háskóla Íslands.
Sjá heimasíðuna www.shjradgjof.is og SHJ ráðgjöf á Facebook og Instagram. Dr. Árelía Eydís hefur áratuga reynslu af háskólakennslu og út hafa komið fjölmargar bækur eftir hana. Þær er hægt að skoða nánar á heimasíðu hennar: www.areliaeydis.is
Áhersluþættir í sjálfsvinnu:
Við heimsækjum marga áhugaverða staði á meðan ferðinni stendur. Þar á meðal má nefna:
- Heilsan þín: Andleg, líkamleg, félagsleg
- Lykilþættir hamingju, 10 lyklar til að „lifa betur“
- Hver er sérstaða þín og lífskraftur ?
- Ólík æviskeið: Að skapa tækifæri í tíma mótum
- Samskipti sem gefa og samskipti sem taka jafnvægi, dagsskipulag og forgangsröðun í lífi og starfi
Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þig vantar aðstoð. Skoða allar ferðir
VERÐ: 282.000 kr.
á mann m.v. tvíbýli *
*Aukagreiðsla 68.000 kr. fyrir einbýli
– Beint flug með Wizzair til Kraká og heim frá Varsjá
-5 nætur á spa hótel Odyssey
-2 nætur á hótel H15 eða sambærilegu hóteli miðsvæðis í Varsjá
-Morgunmatur alla daga
-2 kvöldverðir
Áhugasamir hafið samband með tölvupósti
Fararstjóri:
Stjörnuferðir starfa undir leyfum og tryggingum Polaris journeys ehf. Eigandi og framkvæmdastjóri er Hildur Gunnarsdóttir